1. gr.Íbúakort.Bílastæðasjóður
Reykjavíkur gefur út bílastæðakort, hér eftir nefnd íbúakort, til íbúa sem búa
á íbúakortasvæðum innan Reykjavíkur, í samræmi við nánari skilyrði sem hér
greinir. Íbúakort
veitir heimild til að leggja bifreið án endurgjalds í gjaldskylda stöðureiti
innan gildissvæðis íbúakorts, með þeim takmörkunum sem greinir í 5. gr. 2. gr.Íbúð.Aðeins er
heimilt að gefa út íbúakort til íbúa í íbúð sem uppfylla öll eftirfarandi
skilyrði: a. Íbúð skal staðsett innan gildissvæðis
íbúakorts samkvæmt 5. gr. b. Íbúð má ekki vera skilgreind
námsmannaíbúð, hjúkrunarheimili eða dvalarheimili. c. Íbúð má ekki fylgja réttur til notkunar
á bílastæði innan lóðar, hvort heldur til einkanota eða í sameign, samkvæmt
deiliskipulagi, lóðarleigusamningi, mæliblaði eða lóðaruppdrætti. Íbúð telst
ekki fylgja réttur til notkunar á bílastæði ef í staðfestri
eignaskiptayfirlýsingu er kveðið á um að íbúðinni fylgi ekki réttur til
notkunar á bílastæði. Þar sem ekki liggur fyrir eignaskiptayfirlýsing og
íbúðir eru fleiri en bílastæði innan lóðar, nægir yfirlýsing um afnotaskipti,
þar sem taldar eru upp þær íbúðir sem hafa afnotarétt af stæðum í sameign innan
lóðar. Einungis er
heimilt að gefa út eitt íbúakort fyrir hverja íbúð sem uppfyllir ofangreind
skilyrði. 3. gr. Umsækjandi.Aðeins er
heimilt að gefa út íbúakort til umsækjanda sem uppfyllir öll eftirfarandi
skilyrði: a. Umsækjandi skal vera einstaklingur með
skráð lögheimili í íbúð sem uppfyllir skilyrði 2. gr. b. Umsækjandi skal vera eigandi
íbúðarinnar eða hafa skriflega heimild frá eiganda hennar til að sækja um íbúakort. c. Umsækjandi skal vera skráður eigandi
eða umráðamaður bifreiðar samkvæmt 4. gr. eða geta með öðrum hætti sýnt fram á
raunveruleg afnot sín af bifreiðinni, til að mynda á grundvelli leigusamnings. d. Umsækjandi skal ekki vera í skuld við
Bílastæðasjóð Reykjavíkur sem komin er til milliinnheimtu eða löginnheimtu. Einungis er
heimilt að gefa út eitt íbúakort til hvers umsækjanda og gildir það óháð fjölda
íbúða sem eru í eigu sama umsækjanda. 4. gr. Ökutæki.Aðeins er
heimilt að gefa út íbúakort fyrir ökutæki sem uppfyllir öll eftirfarandi
skilyrði: a. Ökutæki skal bera gild íslensk
skráningarmerki. b. Ökutæki skal vera heimilt að leggja á
götum og almenningsbifreiðastæðum samkvæmt ákvæðum umferðarlaga og
lögreglusamþykktar. Heimilt er
að gefa út fleiri en eitt íbúakort fyrir sama ökutæki, að uppfylltum öðrum
skilyrðum reglna þessara. 5. gr. Gildissvæði.Hvert
íbúakort gildir innan skilgreinds íbúakortasvæðis. Svæðin skulu ákveðin af
skipulags- og samgönguráði og auglýst með opinberum hætti. Íbúakort
veitir þó ekki heimild til að leggja gjaldfrjálst í stöðureiti á svæðum með
gjaldskyldu P4. Kortin veita heldur ekki heimild til að leggja gjaldfrjálst á
eftirtöldum götum og svæðum: a. Laugavegi. b. Skólavörðustíg milli Laugavegs og
Bergstaðastrætis. c. Bergstaðastræti milli Laugavegs og
Skólavörðustígs. d. Bílaplani við Bergstaðastræti 6. e. Kvosinni, þ.e. Lækjargötu, Kirkjutorgi,
Pósthússtræti, Austurstræti, Hafnarstræti, Veltusundi, Kirkjustræti,
Aðalstræti, Tryggvagötu og Naustunum. Bílastæðasjóður
Reykjavíkur skal á vefsíðu sinni birta yfirlitsmynd yfir gildissvæði íbúakorta. 6. gr. Umsókn um
íbúakort.Sækja skal
um íbúakort með rafrænum hætti á vefsíðu Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Í umsókn
um íbúakort skal að lágmarki tilgreina eftirfarandi atriði: a. Kennitölu umsækjanda. b. Skráningarnúmer ökutækis. c. Fasteignanúmer, ef umsækjandi á
lögheimili í fjöleignarhúsi. Ef
umsækjandi er ekki eigandi íbúðar samkvæmt 2. gr., skal undirritað samþykki
eiganda íbúðarinnar fylgja með umsókn. Bílastæðasjóður Reykjavíkur skal á
vefsíðu sinni gera aðgengilegt eyðublað um samþykki íbúðareiganda. Ef
umsækjandi er ekki skráður eigandi eða umráðamaður bifreiðar samkvæmt 3. gr.,
skal önnur staðfesting á afnotum af bifreiðinni fylgja umsókn, til að mynda
samningur um leigu á bifreiðinni. Bílastæðasjóður
Reykjavíkur skal afla annarra nauðsynlegra upplýsinga frá umsækjanda og úr
opinberum skrám, svo sem þjóðskrá, fasteignaskrá og ökutækjaskrá, eftir því sem
við á og í samræmi við gildandi lög. Úthluta skal
umsækjanda korti fyrir það gildissvæði þar sem lögheimili hans er. Ef
umsækjandi á lögheimili á mörkum tveggja gildissvæða er honum heimilt að velja
á hvoru svæðanna íbúakortið gildir. Bílastæðasjóður
Reykjavíkur skal birta leiðbeiningar um umsókn og helstu upplýsingar um
íbúakort á vefsíðu sinni. 7. gr. Gildistími
og notkun.Íbúakort
skulu gefin út með rafrænum hætti til eins árs í senn en þó aldrei til lengri
tíma en heimild frá eiganda íbúðar eða samningur um umráð ökutækis bera með
sér. Íbúakort
verður óvirkt þegar skilyrði fyrir útgáfu þess eru ekki lengur uppfyllt.
Handhafa íbúakorts ber að tilkynna Bílastæðasjóði Reykjavíkur, ef skilyrði
fyrir útgáfu íbúakortsins eru ekki lengur uppfyllt vegna breyttra aðstæðna
korthafa, svo sem vegna flutnings á lögheimili, sölu ökutækis eða annarra sambærilegra atvika. 8. gr. Gjaldtaka.Fyrir
útgáfu, breytingar og endurnýjun á íbúakorti skal greiða gjald samkvæmt
auglýstri gjaldskrá. Gjaldið skal greitt þegar umsókn hefur verið samþykkt.
Íbúakort er ekki virkjað fyrr en Bílastæðasjóður Reykjavíkur hefur móttekið
greiðsluna. 9. gr. Ógilding.Bílastæðasjóður
Reykjavíkur getur ógilt íbúakort ef handhafi verður uppvís að misnotkun
kortsins. Handhafi korts sem hefur verið ógilt vegna misnotkunar á kortinu,
getur ekki fengið útgefið nýtt kort í tvö ár frá ógildingu útgefins korts. Bílastæðasjóður
Reykjavíkur getur einnig ógilt íbúakort ef sjóðnum verður kunnugt um að
skilyrði fyrir veitingu íbúakorts eru ekki lengur uppfyllt, án þess að
handhafi kortsins hafi tilkynnt sjóðnum um það í samræmi við 7. gr. Bílastæðasjóður
Reykjavíkur skal tilkynna handhafa íbúakorts um ógildingu korts samkvæmt
ofangreindu. 10. gr. Gildistaka
og lagastoð.Reglur
þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019,
með síðari breytingum, voru samþykktar á fundi skipulags- og samgönguráðs þann
10. mars 2021 og á fundi borgarráðs þann 18. mars 2021 taka gildi við birtingu.
Á sama tíma falla úr gildi eldri reglur um bílastæðakort íbúa í Reykjavík nr.
591/2015. Borgarstjórinn
í Reykjavík, 19. mars 2021.
Dagur B.
Eggertsson.
|