Gjaldskyld bílastæði
Innheimtuferli
Þegar gjald er lagt á ökutæki er það lesið nær samstundis
inn í bankakerfið og stofnast þar á viðkomandi eiganda/umráðamann og er þá
tilbúið til greiðslu. Ein undantekning er á þessu en í þeim tilvikum þar sem
lögreglan eða stöðuvörður handskrifar miða er gjaldið lesið inn í banka daginn
eftir. Hægt er að greiða gjaldið í öllum bönkum og sparisjóðum hér á landi.
Þegar gjald er greitt innan þriggja virkra daga í heimabanka eða bankastofnun
er veittur staðgreiðsluafsláttur. Sé gjald ógreitt 14 dögum eftir álagningu er
send út greiðsluáminning. Sé gjaldið enn ógreitt 28 dögum eftir álagningu er
aftur send greiðsluáminning. Komi ekki til greiðslu á álagningu innan 60 daga
fer krafan í innheimtu hjá innheimtufyrirtæki og innheimtukostnaður leggst á
kröfuna.